Hidda
15.01.2008 19:21:19 / Hildur

MYNDIR MYNDIR

  DK Jólamyndir   

var að setja inn myndir frá um Adventunni 20070

 

hidda.150m.com


» 0 hafa sagt sína skoðun

06.11.2007 23:08:10 / Hildur

New york myndir

var að setja inn myndir frá NY ;)

 

hidda.150m.com

 

 

 

 

 

  


» 2 hafa sagt sína skoðun

03.11.2007 17:32:11 / Hildur

back from the US of A

Halló halló folkens

allt gengur vel .. veit ég er mjög löt í þessu blogg vesene.. þannig að þið verðið bara að bear with me !!

þeir sem hafa ekki fengið póstkort frá mér frá New York .. eru bara alls ekki vinir mínir .. þannig að takið þessu bara þannig !!

 

;)

luv hildur


» 0 hafa sagt sína skoðun

13.06.2007 11:34:57 / Hildur

Sumarvinna

hellú !! folkens

 

jæja ég hef smá fréttir :)

Ég er búin að fá sumarvinnu hérna úti í Köben. Er semsagt að fara að byrja að vinna í Leonard á Kastup flugvellinum. Það verður skemmtilegt held ég. Fæ þokkaleg laun og það sem ég er mest ánægð með að ég þarf ekki að hanga fyrir framan tölvuna í sumar líka ;) Fæ að hafa samband við fólk hihih.. þó veit ég að síðast þegar ég var að vinna í búð þá þoldi ég það nú eiginlega ekki en ég vona að þetta verði annað..

Við erum sirka 5 íslendingar að vinna þarna og við erum staðsett nálægt Terminal 2 þannig að þeir sem koma með iceland express hafa góðan aðgang í búðina ;) ætli þetta verði ekki aðalega íslendingar sem koma að versla svona first alla vegana.

en nóg um það, ég er að fara að skila verkefninu mínu fyrir 4 önn á föstudaginn. Mig hlakkar ekkert smá til að fá sumarfrí og hafa möguleika á að sleikja sólina það verður ljúft. Svo á laugardaginn fer ég með bekknum til Kassel í Þýskalandi (þannig ég verð þarf yfir 17.júní) vona að það á eftir að heppnast vel, og verði rólegt og mikil bjórdrykkja :)

_______________________________

Ég vil nota tækifærið og þakka þeim sem hafa komið í heimsókn til mín yfir árið fyrir skemmtilega samveru, það var soldið stöðugur straumur hérna í apríl-juni..
sept - Lilja og Kristján (stoppuðu yfir eina helgi í vinnuferð hjá Kristjáni
okt - Sandra og Andri (skárum við ekki út úr Graskeri í smá sýrutrippi ;)
nóv- Þóra, Guðjón, Inga Dís, Andrés Blær (smá stopp á leiðinni til Svíþjóðar)
apr - Mamma (alltaf gaman að fá hana til að knúsa)
mai - Þóra og Guðjón svakalega skemmtilegt að hafa þau í litla herberginu mínu vona að það hafi verið þægilegt á gólfinu ;) heheh
juni
-Hjördís (hún er bara ný farin, ég hefði viljað vera meira með þér, en svona er að koma rétt fyrir stór skil, við munum það bara næst þegar þú ert að spá í að koma út ;))

 

knús til ykkar allra..

og til hamingju Bjössi, Bogga og Kristján að vera að útskrifast á sunnudaginn er það ekki annars 16.júní... knús og kossar

hugsið gott til mín á föstudaginn klukkan svona sirka 12 á íslenskum tíma ;) á stend ég örugglega fyrir framan 30 manns og reyni að gera verkefnið mitt skiljanlegt


» 2 hafa sagt sína skoðun

20.04.2007 15:10:02 / Hildur

Gleðilegt SUMAR !!

hellú fólk!!!!!!!!

 

Hvað segiru núna í dag.. ég segi bara allt í fína.
Þó ég  er ekki búin að skrifa neitt í mánuð þýðir ekki að ég sé tröllum gefin.  Ég er búin að hafa það fínt ..

Mamma er nýfarin, hún kom þann 2.apríl og gisti hjá mér fyrir páska sem voru svona 3 dagar.  Svo fórum við til hennar Ásgerðar og spiluðum okkur í hel .. þ.e.a.s segja ef Kani getur haft skaðlega áhrif á heilsuna, ég man ekki eftir að við gáfum okkur einhverja pásu á spilafíkn okkar.

við gerðum ýmislegt stöllurnar, meðal annars fórum við í heil nudd (það var bara gott!!) og borðum einstaklega góðan mat, bæði úti á veitingarstöðum og hjá henni Ásgerði elsku.  

Svo fór ég að gráta (næstum) þegar hún þurfti að fara að fljúga heim á mánudaginn.. það var allt of gott að nota hana sem afsökun fyrir að vinna ekki í verkefninu (maður þarf nú að sinna gestunum sínum;))

Þannig að nú ætti ég að setja kraftinn í að vinna í verkefninu en míns er bara ekkert sérstaklega að nenna því skiluru.. þegar maður er búin að vera í fríi er erfitt að byrja aftur .. svona er þetta bara  .. en ég þarf að fara að taka mig á .. heheh

Þessi vika er búin að vera soldið viðburðarík: ótlúlegt en satt!!!

Ég kvaddi mömmu
Birjaði í vinnunni (sem er að þrífa litla skrifstofu niðri í bæ, Ásgerður reddaði mér því, tvisvar í viku 3 tímar í senn sem ég get svo ráðið hvort ég geri það snemma á morgnana eða um kvöldið, bara snilld það)
Fór á eitt lítið oggu date.. no comment !!
Bambi frændi kom í heimsókn í gær og bauð mér út að borða, enda var ég orðin svöng frá því síðast í febrúar.
Svo er ég líklega að fara á tónleika í kvöld í Tívolí , gaman gaman

 

Ég vona að það sé nú eitthvað að frétta af þér?  Endilega segðu mér frá því.. það er alltaf gaman að heyra hvað þú ert að stússa ;)

Luv Hiddan


» 4 hafa sagt sína skoðun

19.03.2007 11:05:19 / Hildur

update

jæja.. það er nú meira hvað maður nennir ekkert að skrifa hérna inn..

 

p.s ég er heldur ekki besti penni til að skrá svona færslur.. en stundum getur það verið gaman að segja frá ..

 

Jæja what the hell. . það var hörku party á laugardaginn og ég skemmti mér vel . .


» 1 hafa sagt sína skoðun

22.02.2007 09:44:40 / Hildur

A?

A hvað þýðir það :).. jbbí.. verkefnið var metið svo hátt.. ég er í skýunum ;)

 


» 3 hafa sagt sína skoðun

19.01.2007 23:09:46 / Hildur

LOKSINS LOKSINS

Ég var að koma inn úr dyrunum .. Við krakkarnir (Ninja, Ieva og Arnór) fórum út að borða á 'Café Lunas' til að fagna því að við vorum að klára kritík..

Ég var semsagt að skila 'Protese' sem ég hef verið að vinna að síðust 4 mánuðina. Ó hvað ég er fegin því að vera blessunalega búin að þessu. (Reyndar ekki alveg en svona aðal atriðið er búið)..

Ég sagði frá hugmyndinni að módelinu og sýndi það að sjálfsögðu líka heheh..  og fékk bara JÁKVÆTT feedback :P ég bjóst reyndar við því að fá einhverja athugasemd út á þetta (sem getur reyndar alveg verið að ég hafi fengið en ég bara man það góða hmmm.. það er alveg möguleiki ;)) en ég er mjög mjög mjög ánægð ..

Ég ætti kannski að segja aðeins frá hugmyndinni svo að þið skiljið hversu furðulegt það er ..heheheh

Svona sagði ég þetta nokkurn veginn ;) :

Min udgangspunkt er at lave et 2demensional tegning i et rum. 
Fra perspektiv blik har jeg taget nogen syns direktioner til gulvlisten, vindueskarmen, hjørner, væg. Så jeg fik nogenlund et gridsystem som jeg brugte til at lave tegningen som spænder det smalle rum. 

Så når mand kigger til modelen (som er sirka 150x200 cm stort) ser man et 2d tegning men så når mand går tættere på det kan mand faktiskt se at det har en dypte.

heheheh..jæja prófiði að skilja þetta ;) (maður verðuru að láta reyna á dönskuna hjá ykkur)..  en alla vegana þá sagði prófessorinn að þetta væri UNDERLIGT (skrítið) en samt ekki á slæman hátt.  Mjög spennandi og það passaði mjög vel inn í rýmið sem ég valdi (sem er gangur að klósettinu á hæðinni minni í skólanum þar sem er mjög ljótur vaskur).. mjög óaðlaðandi rými, eins og prófessorinn sagði "þú hefur örugglega valið ljótasta rýmið í allri byggingunni, en þetta virkar" ;) heheh

jæja.. ég tek myndir af þessu á sunnudaginn og svo fer prósess í að setja upp á plakat .. myndir, skissur, teikningar, ljósmyndir af 3d módeli eða bara það sem ég vil setja upp af því sem á undan hefur farið..

ÉG ER SVO ÁNÆGÐ, því eins og flestir vita að fyrir jól þá gekk mér ekkert allt of vel með að finna lausn á verkefninu, en svona er að fara til Íslands í smá tíma maður fær bara BRAINSTORMS ;) hehehe takk fyrir það dúllur að leyfa mér að slappa af ..

og núna á morgun Laugardaginn 20. janúar þá ætla ég að SOFA ÚT .. hef ekki gert það síðan um jólin.. úff.. hlakka til :)

kveðja
BROSKALLINN :)


» 4 hafa sagt sína skoðun

08.01.2007 16:25:49 / Hildur

MSN - alki

Ég er búin að vera frekar háð msn-inu og ég hef bara ekki getað látið það vera .. og þar af leiðandi hefur það haft truflandi áhrif á mig í náminu (kenni því alfarið um það) ;)

Nú þegar það er stutt þangað til ég á skila verkefninu ákvað ég að fara í afvötnun á þessu kjaftæði mínu.. þar af leiðandi hef ég fjarlægt það af tölvunni þannig að ég freistast ekki til að opna það seinna..

þannig að ef þið viljið tala við mig verðið þið bara að hringja í mig ;).. ég er með síma, gemmsa og e-mail ;)

Kveðja í bili
viva la Freedom

» 0 hafa sagt sína skoðun

06.01.2007 20:18:06 / Hildur

Nýjar Myndir

Var að enda við að setja inn fullt af myndum á síðuna mína.. endilega kýktu við ;)..  http://www.hidda.150m.com eða það er linkur hérna vinstra megin ;)

seeya later alligator



» 2 hafa sagt sína skoðun

05.01.2007 18:01:45 / Hildur

föstudagurinn 13?


Núna klukkan 19:00 á ég afmæli.. ekki þetta venjulega afmæli sem maður hrópar húrra fyrir, heldur óhappa afmæli mitt.. sem sagt 5. janúar 1998 kl. 19 öklabrotnaði ég.
Alveg ÆÐISLEG upplifun..
jæja en maður man enn eftir þeirri pínu að þurfa að húka fótbrotin í grenjandi rigningu og ekkert fólk í augnsýn. Sá hálf tími var mjög lengi að líða, en svo kom  bjargvætturinn minn, sem átti að ég held eina gsm símann á landinu (svakalegan hlúnk) hann hringdi á sjúkrabíl og svo fékk ég að hringja í mömmu sem kom og hitti mig á spítalanum.

Þetta var í firsta sinn sem ég lá á spítala og gekk mér ekkert svakalega vel að sofna með 5 hrjótandi kellingar í kring um mig. Hugsa sér að 14 ára unglingurinn var ekki settur á barnadeildina.. þetta skil ég ekki enn í dag, en ætli ég hafi ekki bara verið of stór fyrir rúmið ;)

Jæja en góða við þetta allt sama var að ég fékk 4 vikur auka jólafrí (maður verður alltaf að hugsa jákvætt)

Ég skal reyna að viðhalda ekki hefðinni á þessum degi og lenda í slíku aftur.
gerði það nefnilega ekki í fyrra en þá lenti ég í bílslysi.. úff.. hver heldur því fram að það sé föstudagurinn 13 sem boðar óheppni..
nei held að þessi dagur sé sérstaklega tileinkaður mér ;)

» 1 hafa sagt sína skoðun

22.12.2006 02:23:38 / Hildur

Óður til JÓLAFRÍS

Nú kom loksins að því..  firsti jólafrídagurinn á þessu ári :)

Ég gerði nú ekki mikið annað en að vera með smá hausverk og ég virkaði mjög hægvirk í dag (því ég var á jólahlaðborði í skólanum í gær)..  en ég náði að gera alveg heilann helling

* Vakna snemma (svaf í 6 tíma sem sagt)
* Þvo allt sem ég átti (ó já best að fara niður í þvottarhús og ná í handklæðin mín ;)) heheheh
* Fara með hjólið í viðgerð (það sprakk sko á því á þriðjudaginn og ég gat ekki fundið gatið)
* Fór svo að pæla í hverju ég gæti gefið liðinu :)
* Hljóp svo út í Fields (stærsta mollið í skandinavíu hef ég heyrt einhvers staðar)
* Fór svo til Ieva og Sebastian í mat og video :)

Þetta hefur sem sagt verið hið besti bestasti dagur :)

Ég er samt ekki að skilja að ég er að fara heim á morgun í skíta kuldann og storminn (brrrrrrrrrrrrrr.....) ég sem hef það svo gott hérna.. og hvað þá heldur að það sé jól eftir svona 2 1/2 dag.. úff.. það er yfir mínum skilningi..

En alla vegana kem ég til landsins á morgun klukkan 22.00.. ef það verður ekki eins mikil töf og var í kvöld vegna veðurs :( nokkrir sem ég þekki þurftu að húka á flugvellinum í nokkuð marga tíma..

En við sjáumst elskurnar.. og afsakið að ég hef ekki sent jólakort .. sé ekki fyrir endanum á öllu þessu..  En ....

Ég óska ykkur
Gleðilegra Jóla
og
FRÁBÆRT nýtt ár !!

nissehilsen
Hildur

» 0 hafa sagt sína skoðun

14.12.2006 16:15:31 / Hildur

Myspace

Þið verðið að drulla ykkur á http://www.myspace.com/hilduringaros

og fáið þið ykkur eins slíka.. svakalega gaman, þá get ég líka fengið fleiri vini ;)

kv Hidda


» 0 hafa sagt sína skoðun

22.11.2006 11:25:11 / Hildur

NEWS! NEWS!

Nú sit ég upp í skóla, er ekki enn komin í gang.  Ég kom nefnilega of seint eina ferðina enn..  var búin að lofa sjálfri mér að fara upp í skóla klukkan níu.. en það verður alltaf erfiðara og erfiðara .. Ekki það að ég er eitthvað þunglind eða neitt þannig, það er bara svo leiðinlegt veður og kalt, þú veist að ég þarf að hjóla upp í skóla og hlýja mér svo aftur þar, á meðan að þú getur tekið bílinn þinn og keyrt í skólann eða vinnuna með hitann á fullu..

Jæja, en ég fór til Svíþjóðar um síðustu helgi í tvennum tilgangi:
Firsta og fremsta lagi að kýkja á Þóru Björgu og familie sem voru í heimsókn hjá móðursystur hennar, Agnes.  Svo hélt ég afram inn í landið og til hennar Therese sem ég kynntist í Noregi..

Þetta var rosalega gaman þó að Andrés Blær held ég hafi gert út af við mig af athygli, hann hefur greinilega saknað mín mikið ;)
Svo var fínt að kýkja til hennar Therese þó hún átti með erfiðleikum að skilja mig, því síðast þegar ég kom talaði ég mjög góða sænsku en núna tala ég hreina dönsku (með smá sænskum slettum inn á milli til að gera mig að einhverju leiti skiljanlega)..  þetta var mjög vandræðanlegt á köflum því mér finnst mjög gaman að djóka, og það tekst ekki alltaf þegar hinn aðilinn þarf 5 mínútur að ná því hvað ég segi.. úff.. þar með deyr brandarinn mjög hratt.


Skýi brá fyrir sólu á laugardaginn þegar móðir mín hringdi í mig öskuvond yfir því að ég hafði ekki sagt henni að ég væri með íslenska símanúmerið þarna í Svíþjóð, en svo róaðist hún snögglega og tjáði mig að föðuramma mín væri dáin..
Hún æðislega Bogga amma er farin.. :( það var ekki gott að heyra, en jákvætt að hún hafi fengið að fara enda búin að býða lengi.. núna er hún vonandi alsæl hjá Afa, Gunnu, Ingvari Mar og Elvari Gísla svo einhverjir eru nefndir.

Ég verð að þakka FRÁBÆRUM og þið vitið hverjir þið eruð :) fyrir að hjálpa mér til að koma í jarðaförina.. Elska ykkur mjög mikið, og ekki bara fyrir það ;)

En þá kem ég með 22.20 fluginu á fimmtudaginn 24.nóv.  og fer til baka með 14.10 fluginu á sunnudaginn..

Við sjáumst þá, hlakka til þó þetta séu nú ekki bestu aðstæðurnar.
Bestu kveðjur
Hidda

» 1 hafa sagt sína skoðun

25.10.2006 16:35:54 / Hildur

ný vitneskja

ég var að fatta að ég er með gestaherbergi hérna í nágreninun... þ.e.a.s það sem ég hef aðgang að .. bara hérna í næsta húsi :).. fyndið kv Hildur

» 2 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 6
Dagatal
febrúar - 2012
S M Þ M F F L
1234
567891011
12131415161718
19202122232425
26272829
FyrriNæsti